Ég ákvað að fara inn á heimasíðu háskólans hérna í gær þar sem ég get tékkað á statusnum á umsókninni minni! Þar beið mín mjög svo óvæntur glaðningur því þar stóð að ég væri boðuð í viðtal 22 maí!!! ólýsanleg gleði!!
Ég fékk svo bréf um þetta með póstinum í dag og af 1687 umsækjendum eru 300 sem fara í viðtal og svo ca. helmingurinn af þeim sem fara í viðtal komast inn. Þannig að það er ekkert öruggt ennþá en ég hef ákveðið að vera jákvæð:D
þannig að nú veltur áframhaldið á því hvernig 22. maí gengur:D