Afar viðburðaríkur dagur í lífi Siggu...Var vakin með símtali klukkan 7 og spurð hvort ég væri til í að koma að vinna í þvottahúsinu - Mjög fínt!
Kíkti í spegil, tvær nýjar bólur í andlitinu - oj
Missti af strætó og kom aðeins of seint - Ekki fínt, en var samt beðin að mæta aftur á morgun!
Eyddi sex klukkutímum í að brjóta saman þvott, ekki alveg my thing - En hefði kannski verið fínt ef að þetta hefði verið minn eigin þvottur
Smakkaði í fyrsta sinn alvöru danskt smörrebröd - mmmmmmm....það var obbbbosslega gott!!
Var búin klukkan 3 að vinna, þá missti ég aftur af strætó - það var ekki fínt!
Kom heim, náði varla að anda áður en ég þurfti að hjóla af stað í skólann, í grenjandi rigningu - ekki heldur fínt!
Nú er ég komin heim og er að borða cup noodle soup...ég vissi að ég hefði ekki átt að setja spicy sósuna út í - ég er að brenna! (skil heldur ekki af hverju það eru grænar baunir í núðlusúpunni...?!?!)
Svo er ég búin að drekka allt of mikið af "pissukaffi" í dag - það er ekkert sérstaklega gott!
Í dönskuskólanum er ca 80% af öllu fólkinu múslimar. Ég er að reyna að vingast við eins marga og ég get svo að þeir sleppi því að sprengja mig ef að þeir ákveða að grípa til svoleiðis ráðstafanna - það gengur hægt!

...mmmm, svona fékk ég:)
...en nú er ég alveg bókstaflega að brenna, ég ætla að hætta að borða núðlusúpuna!!!