E-mail this post



Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Þessi helgi fór ekki alveg eins og hún var plönuð...sem skiptir kannski engu máli reyndar! en föstudagurinn byrjaði á því að húsmóðirin eldaði dýrindis mat úr uppskriftabókinni sem hún hafði keypt, Mad på 15 minutter og er sett saman fyrir nútímafjölskyldur sem hafa lítinn tíma til þess að elda. Ég keypti hana nú samt ekki vegna tímaleysis heldur eru þetta bara einfaldar og skemmtilegar uppskriftir...þegar ég er búin að ná tökum á þessari bók þá uppfæri ég kannski í Mad på 1 time....! En allavega eftir dýrindismáltíðina þá fórum við í kveðjupartý hjá Hrafnkeli og Möggu. Það var voða gaman, hitti þar fullt af nýju fólki. Við vorum með þeim síðustu þaðan út og þá fórum við nú bara heim, reyndar stoppuðum aðeins til þess að fá okkur kebab....ummmm best í heimi! Við vorum samt ekki hætt, opnuðum einn öl þegar við komum heim og spjölluðum smá. Allavega...daginn eftir var sko ekki mikil hætta á því að ég yrði skemmtileg það kvöldið! þannig að við skrópuðum bara á þessu lokahófi hjá fótboltanum hans Gumma, og oh my goooood hvað ég er fegin í dag :) alltaf skemmtilegt að vera hress á sunnudegi!

Ég á svo eftir að skrifa um Gosneyslu barna fyrir dönskuskólann á morgun...get ekki beeeeðið eftir að byrja á því !! En í staðinn fyrir að byrja á því þá er ég á fullu að vinna í því að búa til myndasíðu:) það gengur hægt fyrir ekkitökvumanneskju eins og mig en ég lofa því að hún kemur upp mjöööög bráðlega!

|

Hver er ég?

  • Sigríður Ásta Þorgeirsdóttir
  • Lyfjafræðinemi með meiru í borg óttans!
  • www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from siggadani. Make your own badge here.

Previous posts

Archives